Q:
Hvernig skrái ég mig inn í Rafræna Reykjavík?
A:
Ef þú hefur ekki nú þegar stofnað þína síðu skráir þú kennitöluna þína undir NÝSKRÁNING. Fylgdu leiðbeiningunum og þú færð sent notendanafn og lykilorð í netpósti. Síðan geturðu skráð þig inn í Rafræna Reykjavík undir INNSKRÁNING.
Smelltu í svæðin og fylltu inn rétt notendanafn og lykilorð. Smelltu síðan á hnappinn INNSKRÁNING.

Q:
Síðan mín
A:
Þegar þú skráir þig inn opnast vefsíða fyrir þínar umsóknir (SÍÐAN MÍN). Þar er listi yfir alla þjónustu sem hægt er að sækja um rafrænt og eyðublöð sem hægt er að prenta út.

Q:
Hvað eru skilaboð?
A:
Öll samskipti vegna rafrænna umsókna eru staðfest í netpósti, sem sendist á þína síðu. Þú getur einnig valið um að fá slík skilaboð send beint á netfangið þitt. Til að breyta netfangi þá smellirðu á BREYTA PERSÓNUUPPLÝSINGUM á SÍÐAN MÍN.

Q:
Hvað eru erindi/mál?
A:
Erindi/mál eru umsóknir sem þú hefur sent rafrænt eða önnur atriði varðandi samskipti þín í Rafrænni Reykjavík. Þú getur fylgst með stöðu þeirra og framvindu og þegar staða þeirra breytist færðu send skilaboð. Smelltu á flipa merktan MÁLIN MÍN þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík. Þar sérðu yfirlit yfir mál og önnur erindi.

Q:
Hvernig fylgist ég með umsóknum?
A:
Þú getur fylgst með stöðu umsókna í MÁLIN MÍN. Í hvert skipti sem breyting verður á stöðunni, þá færðu send skilaboð á síðuna þína og á netfangið þitt ef þú hefur óskað eftir því. Ef þú hefur ekki netfang þá geturðu fengið skilaboð send með venjulegum pósti. Þú þarft þá að haka við þá stillingu í BREYTA PERSÓNUUPPLÝSINGUM.

Q:
Getur barn fengið aðgang að Rafrænni Reykjavík?
A:
Þeir, sem verða 17 ára á yfirstandandi ári og eldri, geta fengið aðgang að Rafrænni Reykjavík.
Þjóðskrá Hagstofu Íslands er grundvöllur að tengingu barna við foreldri í Rafrænni Reykjavík.

Q:
Hvað er Mentor?
A:
Mentor er vefkerfi sem gerir þér kleift að nálgast upplýsingar frá grunnskóla eða leikskóla barna þinna. Þessar upplýsingar eru skráðar í upplýsingakerfi sem er notað í flestum grunn- og leikskólum landsins. Á vefnum birtast upplýsingar varðandi þín börn, óháð því hvaða skóla þau sækja.
Þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík þá opnast fyrst SÍÐAN MÍN. Þar inni, neðarlega til hægri, er hnappurinn MENTOR.
Þú þarft ekki að hafa sér notandanafn og lykilorð fyrir Mentor því að innskráning í Rafræna Reykjavík jafngildir innskráningu í Mentor. Það þýðir að hægt er að smella á hnappinn MENTOR og skráist þú þá sjálfkrafa inn í Mentor kerfið og getur þar nálgast upplýsingar um börn þín.

Reykjavíkurborg | Símaver 4 11 11 11 | netfang: upplysingar@reykjavik.is