Til að fá aðgang að rafrænum umsóknum Reykjavíkurborgar þarftu að hafa aðgang.
Ef þú ert skráður notandi þá skráir þú þig inn hér fyrir neðan.
Því miður hefur ekki náðst að virkja afskráningarmöguleikann í pöntun á skólamat en sá hnappur verður ekki virkur fyrr en í byrjun næstu viku.
Vinsamlegast athugið að segja þarf upp skráningu í mat fyrir 20. hvers mánaðar og tekur uppsögn gildi mánaðarmótin þar á eftir. Þau börn sem hafa verið skráð í mat nú þegar eru því skráð í mat út mánuðinn og nægjanlegt er að afskrá börnin fyrir 20. september til þess að afskráningin taki gildi.
Virðingarfyllst,
Kolbrún Hlín Hlöðversdóttir
verkefnisstjóri Rafrænnar Reykjavíkur.
Skráning í mötuneyti grunnskóla hafin
Úr bréfi menntasviðs:
"Til að geta skráð nemendur í mataráskrift þarf
foreldri/forráðamaður að skrá sig inn í Rafræna Reykjavík með
kennitölu og lykilorði, sjáhttp://rafraen.reykjavik.is á heimasíðu
Reykjavíkurborgar, http://www.reykjavik.is .
Þeir sem ekki hafa lykilorð þurfa að stofna aðgang og geta í
kjölfarið fengið lykilorðið sent í sinn heimabanka eða í
almennum pósti.
Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu skulu hafa samband við
skrifstofu skólans og fylla þar út samning um mataráskrift.
Mánaðarlegt gjald fyrir hádegismat í skólamötuneytum borgarinnar er
samkvæmt ákvörðun borgarráðs hverju sinni og er innheimt níu
sinnum á skólaári, frá september til maíloka, í jöfnum greiðslum.
Gjaldið er nú 5000 kr. á mánuði. Foreldrar geta valið
að greiða með greiðsluseðli eða kreditkorti.
Vakin er athygli á því að innheimt er eftir á, t.d. er reikningur
vegna áskriftar í september gefin út 20. þess mánaðar með gjalddaga
þann 1. október og eindaga 1. nóvember.
Ef mataráskrift er hætt þarf að segja henni upp í Rafrænni
Reykjavík og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðamótum. Að
öðrum kosti er áfram gert ráð fyrir hádegisverði fyrir
nemandann og greiðslu.
Matseðlar eru gefnir út í hverjum skóla og vistaðir á heimasíðu
hans.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar veitir alla frekari aðstoð við notkun
Rafrænnar Reykjavíkur í síma 411 1111"
Q:
Hvernig skrái ég mig inn í Rafræna Reykjavík?
A:
Ef þú hefur ekki nú þegar stofnað þína síðu skráir þú kennitöluna þína undir NÝSKRÁNING. Fylgdu leiðbeiningunum og þú færð sent lykilorð í heimabanka þinn. Notandanafn er ávallt kennitala þín. Ef þú hefur ekki aðgang að heimabanka þá getur þú hakað við að fá lykilorðið sent til þín á lögheimili þitt. Það tekur um 2-3 virka daga. Síðan geturðu skráð þig inn í Rafræna Reykjavík undir INNSKRÁNING.
Smelltu í svæðin og fylltu inn rétt notendanafn og lykilorð. Smelltu síðan á hnappinn INNSKRÁNING.

Q:
Síðan mín
A:
Þegar þú skráir þig inn opnast vefsíða fyrir þínar umsóknir (SÍÐAN MÍN). Þar er listi yfir alla þjónustu sem hægt er að sækja um rafrænt og eyðublöð sem hægt er að prenta út.

Q:
Hvað eru skilaboð?
A:
Öll samskipti vegna rafrænna umsókna eru staðfest í netpósti, sem sendist á þína síðu. Þú getur einnig valið um að fá slík skilaboð send beint á netfangið þitt. Til að breyta netfangi þá smellirðu á BREYTA PERSÓNUUPPLÝSINGUM á SÍÐAN MÍN.

Q:
Hvað eru erindi/mál?
A:
Erindi/mál eru umsóknir sem þú hefur sent rafrænt eða önnur atriði varðandi samskipti þín í Rafrænni Reykjavík. Þú getur fylgst með stöðu þeirra og framvindu og þegar staða þeirra breytist færðu send skilaboð. Smelltu á flipa merktan MÁLIN MÍN þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík. Þar sérðu yfirlit yfir mál og önnur erindi.

Q:
Hvernig fylgist ég með umsóknum?
A:
Þú getur fylgst með stöðu umsókna í MÁLIN MÍN. Í hvert skipti sem breyting verður á stöðunni, þá færðu send skilaboð á síðuna þína og á netfangið þitt ef þú hefur óskað eftir því. Ef þú hefur ekki netfang þá geturðu fengið skilaboð send með venjulegum pósti. Þú þarft þá að haka við þá stillingu í BREYTA PERSÓNUUPPLÝSINGUM.

Q:
Getur barn fengið aðgang að Rafrænni Reykjavík?
A:
Þeir, sem verða 17 ára á yfirstandandi ári og eldri, geta fengið aðgang að Rafrænni Reykjavík.
Þjóðskrá Hagstofu Íslands er grundvöllur að tengingu barna við foreldri í Rafrænni Reykjavík.

Q:
Hvað er Mentor?
A:
Mentor er vefkerfi sem gerir þér kleift að nálgast upplýsingar frá grunnskóla eða leikskóla barna þinna. Þessar upplýsingar eru skráðar í upplýsingakerfi sem er notað í flestum grunn- og leikskólum landsins. Á vefnum birtast upplýsingar varðandi þín börn, óháð því hvaða skóla þau sækja.
Þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík þá opnast fyrst SÍÐAN MÍN. Þar inni, neðarlega til hægri, er hnappurinn MENTOR.
Þú þarft ekki að hafa sér notandanafn og lykilorð fyrir Mentor því að innskráning í Rafræna Reykjavík jafngildir innskráningu í Mentor. Það þýðir að hægt er að smella á hnappinn MENTOR og skráist þú þá sjálfkrafa inn í Mentor kerfið og getur þar nálgast upplýsingar um börn þín.

Q:
Týnt lykilorð
A:
Ef þú hefur glatað lykilorði þínu þá getur þú smellt á Týnt lykilorð undir innskráningarglugganum og þá opnast ný síða þar sem þú slærð inn kennitölu þína. Þá færðu sent nýtt lykilorð í heimabanka þinn. Ef þú hefur ekki aðgang að heimabanka þá getur þú hakað við að fá lykilorð sent á lögheimili þitt. Það tekur um 2-3 virka daga.

Q:
Ég sé ekki barnið mitt inn í Rafrænni Reykjavík.
A:
Aðeins forráðamenn sem barn hefur lögheimili hjá sjá barnið undir sínum aðgangi. Skráning í Rafrænu Reykjavík miðar við fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Þessu er því miður ekki hægt að breyta að sinni.
Ef barnið er með lögheimili hjá þér og þú sérð samt ekki barnið. Sendu þá upplýsingar um kennitölu þína og kennitölu barns á netfangið upplýsingar@reykjavik.is ásamt útskýringu.

Reykjavíkurborg | Símaver 4 11 11 11 | netfang: upplysingar@reykjavik.is